Heiða Stína..! ;*
Myndir
15.12.2006 23:46:55 / hjarta

váh..! það er 15. desember (næstum 16.) og ég minnist ekkert á jólin..! is that right

Ahh.... jæja.. :) ég ætla að blogga..:o ekki það að mig langi það, það er bara ekkert annað í stöðunni..!

Ég er semsagt að passa.. hjá konu sem ég kynntist í vinnunni. Hún á 2 börn sem eru sofandi akkurat núna, sem betur fer.. og mér leiðist ekkert smá mikið...:$ ég er BÚIN að læra.. (ég er að fara í síðustu 2 prófin mín á morgun:haha: ) og ég er búin að borða snakk.. og ég er búin að váfra um á netinu í laaangan tíma.. samt soldið lengi á sumum síðum, því ég.. ehh..:^) átti í smá vandræðum með músina sem ég með.. sko í staðinn fyrir að skrolla niður þegar maður ýtir á skroll-takkann (þúst ýta og svo færa músina soldið neðar þá rennur þetta allt svo þægilega) þá var þetta víst eitthver zoom takki
og ég ýtti fyrst á hann.. og færði músina neðar.. ekkert gerist.. ég prufa þetta svona nokkrum sinnum.. ýti aftur og aftur, færi músina á milljón.. og tek svo allt í einu eftir því að letrið er búið að minnka um helming á síðunni sem ég var að skoða..! (á þessum tímapunkti er ég eeeeeengan veginn búin að fatta að þetta sé zoom-takki, enda engin ástæða til) og svo halda stafirnir bara áfram að minnka, því alltaf þegar ég reyni að gera eitthvað annað þá bara minnka þeir.. enn.. being ég, þá fattaði ég þetta á endanum.. :)

já.. eins og ég sagði áðan þá er ég að passa.. er búin að vera að því frá klukkan 6, og veit ekkert hvenær ég er búin. Og áður en ég kom hingað var ég að vinna uppí Osta- og smjörsölu frá klukkan korter í 10.. og fer svo að vinna í fyrramálið aftur, reyndar eftir að ég er búin að fara í prófin mín ;)

ÉG ER MEÐ MARBLETT Á HÆLNUM..!!! (hata hvað ég er mikill hrakfallabálkur..) allaveganna, þá var ég bara eitthvað að drífa mig heima í gær, og hljóp eitthvað, og stíg akkurat beint á eitthverja járnkúlu..!! ekkert laust sko.. bara allur þunginn hennar Heiðu á eina litla járnkúlu, sem ég braut b.t.w. og ég er með marblett á hælnum.. veit ekki með ykkur, en þetta er í fyrsta skipti sem ég heyri um það.

jæja.. ég er að pæla í að fara að horfa á FRIENDS jjjjjá..:D var búin að gleyma að þau eiga það.. ;) glæsó! jæja.. nú er ég orðin geðveikt glöð.. ;)

C yah.....!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.07.2006 19:29:28 / hjarta

Uhn tss uhn tss uhn tss baby..

Uuu hæ..?

Ég vissi að ég gæti ekki haldið svona bloggsíðu gangandi.. þannig að þetta eru engin vonbrigði.. :) if you don't make plans, nothing will go wrong..

Allaveganna þá ætla ég aðeins að skrifa það sem ég hef verið að bralla uppá síðkastið.. Ég til dæmis var að koma frá Svíþjóð, bara í gærkveldi um kl. hálf 12.. fór með skátunum á eitthvað mót.. svo var flippað í Danmörku. Ég hef semsagt farið til Danmarkar núna.. :D ekki eini Íslendigurinn sem hefur ekki farið þangað lengur.. 8) fór á Strikið og svonna.. allt öðruvísi en ég hélt.. ég vissi ekki heldur að það væri svona heitt í Danmörku og Svíþjóð..! Hafði eitthvernveginn ómeðvitað líkt þeim við Ísland, being Norðurlönd and all.. En jámm mótið var fínt, samt soldið vesen að það var allt á sænsku, mótsblaðið, og bara allt. Sem var soldið lame, en maður bjargaði sér alveg.. hözzlaði bara eitthvern Svía og lét hann þýða fyrir sig.

Það eru allir saman í Svíþjóð by the way...! Ástin greinilega blómstrar þarna um sumarið.. par hvert sem maður lítur..

Anywho.. þá er ég orðin soldið brún núna, ekkert voða samt, en er alveg með fallegt far á fótunum eftir skóna mína. Og svo fékk svona nett stuttbuxnafar sem svo, sem betur fer, dofnaði þegar ég byrjaði að ganga í eitthverju mínípilsi sem ég keypti mér.. Ég gat samt ekki keypt mér mikið, því miður.. :$ bæði skortur á tíma og peningum.. en stóri bró var svo góður að lána mér 20.000 seinasta daginn, þannig að ég gat keypt mér nokkra boli, buxur, peysu, jakka og eitthvað dót.

Vá þetta er glatað blogg.. ég myndi stroka það allt út og skrifa uppá nýtt ef ég bara nennti.. sem ég geri ekki.. Ég er líka að fara í sund núna.. En vonandi koma myndir úr ferðinni bráðum frá Sigrúnu, ekki það að þið myndur hafa eitthvað gaman af þeim, bara ég..:P

Planið fyrir næstu helgi er mjög líklega subbuleg tjaldútilega með krökkunum eða partý hjá Sölva.. kannski bara bæði..

En já.. þetta tók nú ekkert það langan tíma.. kannski ég geri þetta aðeins oftar..?
Blitzer!

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 19:54:27 / hjarta

Sumir dagar sko...

Gosh ertað grínast..! váh... ég var búin að skrifa geðveikt langt blogg en svo bara eyddist allt...! Ég nenni EKKI að skrifa það allt aftur, allaveganna ekki núna..
Æh vá glatað.. akkurat þegar ég nenni að blogga þá gerist eitthvað svona vesen.. :| sry.. eða thx..? LINDA ÉG ELSKA ÞIG..!! :haha:

haha... einkahúmor ;).. sorry...

Heiða.. ;*

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 19:02:21 / hjarta

Fucking shutterfly...

Ókey rugl..! Þessi myndasíða er í fokkinu sko.. var eitthvað að reyna að láta eitthverjar myndir.. en þær splittuðust eitthvernvegin í 3 album.. :S og sumar myndirnar eru oftar en einu sinni..:$ og sumar hafa pottþétt deletast..!:whut:
Allaveganna þá eru komnar nýjar myndir á myndasíðuna...

» 4 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 20:56:08 / hjarta

Vandamál!!

Úff... ég ætla að lita á mér hárið aftur ljóst um páskana held ég.... 8|
...þori því samt ekki... því það fer mér alveg að vera dökkhærð... þannig að af hverju lita það ef það er flott núna..?
..en then again.. þá ætlaði ég alltaf að lita það ljóst eftir veturinn...
...fuck ass ég veit ekkert hvað ég á að gera...

haha ég veit þetta er ekki skemmtilegasta umræðuefni í heimi.. hárið á mér... en það er ekki eins og ég hafi skrifað eitthvað mikið skemmtilegra á þessa síðu mína.. :)

» 7 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 10:52:07 / hjarta

Aðeins um mig.. :)

(x) reykt sígarettu
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
(x) stolið bíl
(x) verið ástfangin/n
( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
(x) verið rekin/n
(x) lent í slagsmálum
(x) læðst út á nóttunni
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
(x) kveikt í þér (hárið mitt.. :cry: )
( ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði
;) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
( ) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" 
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
( ) klappað hreindýri/geit/kengúru 
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út (það kemur fyrir :P )
( ) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
(x) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
(x) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
( ) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý
(x) farið í partý
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
(x) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig
(x) pissað úti


» 5 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 20:54:04 / hjarta

Túkall... ég er ekki einu sinni svo rík...

Jææææjja.......!
Ég er orðin svo upptekin að það er ekki fyndið.. ég hef ekki tíma fyrir að hitta fólk nema á föstudögum og sunnudögum..8| og náttla líka seinni partinn á laugardeginum.. ég var nefnilega að fá mér vinnur, ekki eina vinnu, heldur 2! Ókey það er hellingur af fólki sem vinnur 2 vinnur, jafnvel fleiri.. en svo er ég líka í ökutímum og á námskeiði...umm.. já.. ef ég er ekki búin að segja ykkur hvernig námskeið það er þá eigiði örugglega ekki að vita það..;) en allaveganna þá er ég að vinna í BLÓMAHEILDSÖLU!!!8):haha: ótrúlega cool... hún heitir Samasem.. alveg óendanlega krúttlegur lítill franskur kall sem á þetta :P er já er þar alveg á þriðjudögum, miðvikudögum, fimmtudögum OG laugardögum.. svo var hann eitthvað að spurja hvort ég gæti verið líka á föstudögum.. :S held ekki alveg... en já hin vinnan! Ég var semsagt að koma úr henni núna (hin reyndar á undan:) ) þetta er á vegum heimilishjálpar í bólstaðarhlíð.. ég er semsagt að hjálpa eitthverri konu heima hjá henni með 3 ofvirka/einhverfa krakka.. 2 strákar og ein stelpa. Hitti bara strákana í dag; ótrrrrrrrúlega mikil krútt:o en já ég er hjá henni til að byrja með 2svar í viku.. á þriðjudögum og fimmtudögum.. þannig að vikan er eiginlega þannig hjá mér :
Mánudagar: skóli, ökutími(oftast) svo uppeftir;) svo námskeið og komin heim svona 9
Þriðjudagar: skóli, blómavinnan, hin vinnan, komin heim svona 8-9
Miðvikudagar: skóli viiiiinnnnaaa... bara allan daginn! svo námskeið, heim um 9
Fimmtudagar: skóli, ökutími, aftur í skólann, vinnan, svo hin vinnan! svipað leiti heim..
Föstudagar: skóli og svo ekkkkerrrt :D eða þúst, ekkert planað.. ;)
Svo vinn ég uppí blómaheildsölunni á laugardögum en seeeeef á sunnudögum...!!! Svo ekki sé minnst á að það eru ritgerðarskil á föstudaginn! og ég er ekkert búin með hana... :S ég á svooooooooooooo eftir að falla í íslensku....æjj neinei.. ég reyni bara að sofa minna.. :| eða ekkert :$

En árshátiðin var á miðvikudaginn... :D hún var alveg fín... eða já.. jújú alveg fín. Soldið let-down eftir jólaballið sem var bara MEGA gott ball.. en svona er þetta. Gaman á lagningardögum samt..
en jámm.... lille bror kominn í öskudasbúninginn sinn :P voða fínn... en ég er farin að læra eða eitthvað... samt dauðþreytt... bæjjó þá..
Heiða

» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2006 23:27:28 / hjarta

Það vantar fleiri klukkutíma í sólahringinn...

Jæja það var haldið svaka partý á föstudaginn!:) crazy stuð.. og öllum fannst voða gaman held ég;) allaveganna mér..:P fékk alveg mjög fallega hluti í afmælisgjöf.. t.d. grilltöng, dúkku sem heitir Heiða, nammi, og skafmiða (vann næstum milljón:D) og hatt og svo tvo poka af sykurpúðum.. :P Partýið var til 4 held ég.. hah það var samt geðveikt fyndið hvað það var skipt.. :D "skrýtna fólkið" (neinei segi svona..) var inní stofu og allir hinir annarsstaðar.. enginn mórall samt.:)
Svo á laugardaginn byrjaði ég daginn með að fara í bakaríið með Sigrúnu... ótrúlega nice.. aldrei liðið svona vel á laugardegi.. það var allt bara svo fullkomið..;) svo um kvöldið fór ég í innflutningspartý til Silju og Eika (til lukku með íbúðina..) hún er ótrúlega flott :) Var komin heim um 5 alveg að drepast úr þreytu.. fór svo bara í sund og eitthvað á sunnudaginn.. heima og passa og bara eitthvað chill.. núna þarf ég hinsvegar bara að læra undir 2 próf og skrifa uppkast af 5 blaðsíðna ritgerð sem ég á að skila á morgun.. OG lesa fyrsta kaflann í Hobbitanum..úff það verður gaman hjá mér í nótt... :$
Heiða...

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.02.2006 12:04:28 / hjarta

Global encyclobedia..! :S

Ich habe keine Bratwurst.. ..

vá ég ætlaði að vera geðveikt dulgeg að blogga núna, en ég bara veit ekki rassgat hvað ég á að skrifa um... þannig að ég geri það bara seinna... sorry...

en allaveganna þá held ég uppá áfmælið mitt á föstudginn :D það byrjar klukkan 9!!! ekki 11!!!!8| .. þið komið bara sem vilja..:) ég verð samt að þekkja ykkur... :P Gifts and alcohol allowed....og vatnspípur!!! haha.. með melónutópaki... :D en jámm... sé ykkur vonandi þar..:P

Bæjó... Heiða! 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.02.2006 17:07:14 / hjarta

Ammlisdagurinn minn..! ;*

Okey, þessi síða er ekki alveg að gera sig... eins og ég hélt :$
Nema ég hafi bara bara svona síðu sem ég skrifa eitthvað á þegar I feel like it, bara svona stundum og stundum...
En allaveganna þá átti ég afmæli í gær...! :haha: :D Orðin alveg hundgömul... 17 ár bara fokin útí buskann.. og ég er ekki einu sinni með bílpróf! En það kemur vonandi bráðum.. En gærdagurinn var alveg ágætur.. :) fór náttla í skólann, fyrsti tími klukkan 108) strax kossar og knús frá frábæru sögu-samnemendum mínum :) svo reyndar beilaði ég á frönsku.. langaði bara EKKI í frönskutíma... fór bara í staðin með (guðbjörgu) Lindu útí búð og hún hrúgaði á mig nammi! Ég fékk ekki einu sinni að segja nei.. en jæja svo fórum við bara uppí skóla og vorum þar, ég var tæknilega búin í skólanum, bara 2 tímar á miðvikudögum, en ég þurfti að gera eitthvað söguverkefni sem átti að skila í dag. (kláraði það í morgun b.t.w.) En jámm.. voða gaman.. allir alltaf að óska manni til hamingju með afmælið.. :P ótrúlegt hvað margir vissu að ég ætti afmæli :D ennn....! svo kom eini vondi parturinn af þessum blessaða afmælisdag.. GANGAN Í ÍÞRÓTTUM...!!!:klikk: þetta var brjálæði... við vorum bara send út frá MH og látin labba alla leiðina útí skerjafjörð! Og fyrir þá sem finnst þetta engin vegalengd þá tek ég það fram að það var -9°C frost úti..! Og ég fór ekki beinlínis í snjógallanum í skólann... En svo var mamma svo góð að koma og sækja mig :) (hún vissi reyndar ekki að maður átti að labba líka til baka, en það er annað mál..!) Ég fór heim, alveg dauðþreytt og sofnaði í sófanum inní stofu í svona hálftíma.. Var vakin af Sigrúnu því við þurfum að fara að drífa okkur niðrá Pizza Hut því þar ætluðum við ásamt fleiri gellum að fara út að borða. Ég tók mig til á alveg mettíma og mamma skutlaði okkur þangað. (Ég er ekki dekruð, ég átti bara afmæli.. ;) ) Þar beið Linda og við settumst niður. Fljótlega kom Aðalbjörg. Hinar stelpurnar komu svo aðeins seinna. Eftirá fórum við bara heim í góðu chilli, átum nýbökuðu kökuna hennar mömmu, sumar fleiri en aðrar.. ;) og spjölluðum saman. Það var vel hlegið þetta kvöld, eins og oft gerist þegar 7 stelpur eru í sykursjokki saman, og enn og aftur; sumar aðeins meira en aðrar.. ;)
Svo þegar þær voru farnar fór ég með Guðnýju og Önnu Karen í ísbíltúr. Svo skutluðum við Önnu heim og fórum í heimsókn til Rakelar og Jakobs. Það fór eins og það fór, annars mjög gaman.. :) Rakel var eitthvað að leika sér með myndavélina sína, takandi myndir af mat og eitthvað :P
Svo fór ég heim vooooooða voða þreytt, steinsofnaði og svaf feitast yfir mig í morgun.

Ekki búast við miklu af mér og þessari síðu, þetta kemur bara smám saman.. ;)
Heiða.. :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

06.02.2006 23:34:30 / hjarta

Taraaah...!

ÓKEY..! Þá er það komið... fyrsta heimasíða Heiðu... heimasíðan mín... já.... :$
En já.. ég sem sagt kann ekkert að tjá mig eitthvað svona sem allir lesa og eitthvað, á pottþétt eftir að missa eitthvað útúr mér sem á ekkert að fréttast. Ef það gerist þá látiði mig bara vita.... En á maður ekki alltaf að segja það sem maður var að gera um daginn..? Ég allaveganna á afmæli eftir 2 daga..! :D næstum því einn..!:) og ég ætla að halda uppá það á föstudaginn eftir 2 vikur..! ætlaði að halda það næsta föstudag, en það var eitthvað vesen í gangi.. en samt núna var ég að fatta að það eiga alveg allavega 2 manneskjur afmæli áður en að sá föstudagur er.. sem ætla þá mjög líklega að halda uppá sitt þá... vonandi ekki :( því mig langar að halda mitt þá..:S en jámm allaveganna.. ég ætti virkilega að fara að klára þetta helv**$#$#"% dönskuverkefni um EM í handbolta.. ef þið elskið mig þá megiði alveg hjálpa mér... ;) bara http://mh.hexia.net/dansk/dan103 :P

en já bara svona láta ykkur vita, þá er sko skjárinn á tölvunni minni eitthvað laskaður, hann sýnir enga liti nema blátt og gult og eitthvað.. líka svart og hvítt.. og breytir hinum litunum bara í þessa 4 liti.. þannig að ef ykkur finnst síðan mín eitthvað spes á litin þá er það ekki mér að kenna... þið eruð bara með vitlausan skjá.. ;) en ekki að ég sé eitthvað búin að breyta litnum... allaveganna þá var þetta allrafyrsta bloggið mitt sem ég hef gert á ævi minni og ég er bara nett stolt af mér..8) :D
Bæjó.. ;*

» 4 hafa sagt sína skoðun